Laust er til umsóknar, tímabundið til tveggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár, fullt starf nýdoktors við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Starfið felur í sér rannsóknir á sviði stærðfræði. Stærðfræðistofa Raunvísindastofnunar er rannsóknavettvangur stærðfræðinga við Háskóla Íslands og eru þar stundaðar rannsóknir á ýmsum sviðum hreinnar og hagnýtrar stærðfræði, stærðfræðilegri eðlisfræði og tölfræði. Starfsfólk stærðfræðistofu annast einnig kennslu í grunn- og framhaldsnámi jafnframt því að leiðbeina nemendum í rannsóknatengdu námi.
Starfssvið
- Rannsóknir á sviði stærðfræði
- Þátttaka í rannsóknaverkefnum og styrkjasókn innan námsleiðarinnar
- Möguleg leiðbeining meistara- og doktorsnema
Hæfniskröfur
- Doktorspróf í stærðfræði eða skyldum greinum við upphaf starfs
- Reynsla af rannsóknum í stærðfræði
- Góð enskukunnátta bæði í ræðu og riti
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Umsóknarferli
Æskilegt er að ekki hafi liðið lengri tími en fimm ár frá því umsækjandi lauk doktorsprófi þegar tekið er við starfinu og að viðkomandi geti hafið störf 1. mars 2026, eða eftir samkomulagi.
Tekið verður sérstakt tillit til hversu vel rannsóknir umsækjanda falla að áherslum stofunnar í rannsóknum í stærðfræði (sjá math.hi.is).
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Ferilskrá
- Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
- Afrit af prófskírteinum
- Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Steinar Magnússon