Hvernig bregðast jöklar við loftlagsbreytingum?

Guðfinna Aðalgeirsdóttir, dósent við Jarðvísindadeild

Guðfinna Aðalgeirsdóttir, dósent í jöklafræði, stundar rannsóknir á jöklum sem flestir hopa nú hratt. Hún hefur verið víðförul í rannsóknum sínum og ekki bundið þær við jöklana hér heima. Hún hefur flogið yfir alla helstu jökla í Alaska og gert leysihæðarmælingar til að meta hversu hratt jöklarnir þar bráðna. Þá hefur hún farið alla leið á Suðurskautslandið til að kynna sér hegðun íssins þar og bráðnun. Hún stundaði þar í fyrra mjög markvissar rannsóknir í samvinnu við bresku Suðurskautslandsstofnunina.

„Vinna okkar á Suðurskautslandinu snýst um að skilja flæði íss, hvernig hann hnígur undan eigin þunga og aflagast,“ segir Guðfinna. „Við gerum nákvæmar mælingar með ratsjártækjum á yfirborði íssins. Við sendum rafsegulbylgjur í gegnum ísinn og tökum á móti þeim eftir að þær hafa farið í gegnum efstu lögin.“

Guðfinna segir að mælingar úr gervihnöttum gefi til kynna að ísinn á Suðurskautslandinu sé að bráðna og stórar íshellur hafi brotnað upp og horfið á síðustu árum. „Það er því mjög mikilvægt að skilja þær breytingar sem eiga sér stað til að hafa möguleika á að spá fyrir um hversu mikið sjávarstaða muni breytast á komandi árum.“

Guðfinna segir verkefnið mjög áhugavert og spennandi enda hafi hún verið fljót að grípa tækifærið þegar samstarfsmenn hennar hjá bresku Suðurskautslandsstofnuninni höfðu samband við hana og buðu henni að taka þátt í verkefninu.

Guðfinna segir að fyrstu mælingarnar á þessu svæði hafi verið gerðar á síðasta ári „ ... og nú erum við aftur á sama stað og reynum að endurtaka þær eins nákvæmlega og hægt er til að mæla lóðrétta aflögun íssins á ísaskilum.“

Guðfinna sagði það alveg frábært að komast svona langt suður á bóginn þegar skammdegið er hvað svartast á norðurhveli jarðar. „Það styttir veturinn og við njótum sólskins allan sólarhringinn hér, á um 78. gráðu suðlægrar breiddar. Við höfum útsýni til allra átta og sjónarröndin er hvít allan hringinn. Í fjarska sjást Ellsworth-fjöll þar sem hæsti tindur Suðurskautslandsins, Vinson Massif, rís upp í 4.892 metra hæð,“ sagði Guðfinna í spjalli við Tímarit Háskóla Íslands, stödd í búðum vísindafólksins á Suðurskautslandinu.

Guðfinna er enginn nýgræðingur í sínu fagi en síðustu sex ár hefur hún unnið við dönsku veðurstofuna í Kaupmannahöfn. Þar vann hún við samtengingu loftslags- og jöklalíkana til að geta spáð fyrir um hversu hratt og mikið Grænlandsjökull bráðnar í nánustu framtíð.

Rannsóknin á Suðurskautslandinu byggist að hluta til á reynslunni frá Grænlandi, segir Guðfinna. „Kveikjan að verkefninu á Suðurskautslandinu er sams konar verkefni á Grænlandi, þar sem í ljós kom að stuðlar sem lýsa flæði íssins eru hærri en þeir hafa mælst á tilraunastofu. Á Grænlandi voru í fyrsta skipti gerðar svona nákvæmar mælingar á hnigi íssins við náttúrulegar aðstæður. Þess vegna var ákveðið að fara að nokkrum ísaskilum á Suðurskautslandinu til að gera sams konar mælingar þar.“

Guðfinna segir að rannsóknin á Suðurskautslandinu geti haft áhrif á spár um hvernig jöklar bregðist við loftslagsbreytingum í framtíðinni. „Niðurstöður hennar auka skilning á flæði íss og gætu orðið til þess að þeir stuðlar sem eru notaðir í ísflæðilíkönum verði endurmetnir.“

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is