Út er komin bók eftir Eric H. Oelkers og Sigurð R. Gíslason - Carbon Capture and Storage: From Global Cycles to Global Solutions

Evrópusamtök jarðefnafræðinga gefur bókina út í bókaröð sem kallast  „Geochemical Perspectives“.

Fyrri hluti bókarinnar fjallar um kolefnishringrásina á Jörðinni og hvernig, meðal annars, náðist að skilgreina loftslagsáhrif veðrunar basalts og gagnvirk áhrif loftslagbreytinga og veðrunar vegna gróðurhúsaáhrifa, í samstarfi við Eydísi Eiríksdóttur, Veðurstofuna, Landsvirkjun, Umhverfisráðuneytið og fleiri.

Seinni hlutinn fjallar um kolefnisföngun og bindingu, CarbFix verkefnið, sem unninn var í samstarfi við doktorsnema, nýdoktora, Orkuveituna, CNRS í Frakklandi, Columbia háskólann í NY o.fl., og loks framtíðarhorfur steinrenningar koltvíoxíðs.

Enn fremur eru sögukaflar um upphaf og lok CarbFix verkefnisins, en saga CarbFix verkefnisins er rakin með lýsingum á einstökum doktorsverkefnum í tímaröð.

Vefútgáfa bókarinnar er ókeypis og aðgengileg á vef Geochemical Perspectives

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is