Þóra Árnadóttir er vísindamaður vikunnar í þættinum Samfélagið á Rás 1

Vísindavefur HÍ og RÚV eru í samstarfi um vísindamann vikunnar. Í þættinum Samfélagið á Rás 1 verða næstu vikurnar viðtöl við vísindamenn.

Þóra Árnadóttir, vísindamaður við Norræna eldfjallasetrið á Jarðvísindastofnun Háskólans, er vísindamaður vikunnar. Þóra vinnur við mælingar á færslum á yfirborði jarðar með gervitunglatækni og túlkun þeirra útfrá eðlisfræðilíkönum.

Hægt er að hlusta á viðtalið við hana hér

 

Vísindafólkið er valið úr dagatali íslenskra vísindamanna sem Vísindafélag Íslands og Vísindavefurinn settu á laggirnar árið 2018, en í því var stuttum og aðgengilegum textum um 365 vísindamenn safnað saman í sérstakan flokk á Vísindavefnum.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is