Maxwell Brown og Gabrielle Stockmann hljóta styrk úr Eggertssjóði

Maxwell Brown og Gabrielle Stockmann hlutu á dögunum styrki úr Eggertssjóði til rannsókna og tækjakaupa á sviði jarðfræði. 
 
Gabrielle Stockmann, lektor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, hlaut styrk til kortlagningar  og rannsókna á jarðefnafræði jarðhitastrýta í Ikkafirði á Grænlandi. Strýturnar, sem eru nálægt eitt þúsund talsins, eru um 20 m háar og myndaðar úr ikaíti, sjaldgæfu lághitaafbrigði (við 10-15 gráðu hitastig C) af kalsíumkarbónati.
 
Maxwell Brown, sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans, hlaut styrk til rannsókna á breytingum á stefnu og styrkleika segulsviðs jarðar síðustu þrjár til fimm milljón ár sem lesa má úr berglögum í Borgarfirði.
 

Um Eggertssjóð

Eggertssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands árið 1995 eftir að Eggert Vilhjálmur Briem (f. 18. ágúst 1895, d. 14. maí 1996) hafði ánafnað skólanum eignir sínar, erlend verðbréf og gjaldeyrisreikning.
 
Eggert fæddist að Goðdölum í Skagafirði og fór ungur til vélfræðináms í Þýskalandi en síðan til Bandaríkjanna 1914–1917. Eftir veru sína þar starfaði Eggert nokkur ár á Íslandi en hélt aftur til Bandaríkjanna 1928, tók þar flugvirkjapróf og síðar atvinnuflugmannspróf 1930. Um árabil vann hann í verksmiðjum vestanhafs og hafði eftir það tekjur af uppfinningum, m.a. varðandi saumavélar. Eggert var jafnframt mikill áhugamaður um raunvísindi og las sér margt til um þau.
 
Eggert kynntist Þorbirni Sigurgeirssyni prófessor um 1958 en Þorbjörn hafði þá nýverið komið upp Eðlisfræðistofnun Háskólans. Eggert gerðist sérstakur velgerðarmaður þeirrar stofnunar og síðan Raunvísindastofnunar Háskólans sem tók við hlutverki Eðlisfræðistofnunar 1966. Eggert flutti heim til Íslands árið 1970 og sat hann löngum á bókasafni Raunvísindastofnunar við lestur á efri árum sínum, spjallaði við starfsmenn um fræðileg hugðarefni og tók þátt í ferðalögum á vegum stofnunarinnar, meðal annars upp á jökla. Færði Eggert þessum stofnunum margs konar tæki að gjöf og styrkti einnig þróun nýrra rannsóknasviða þeirra og margvísleg ný vísindaverkefni við Háskóla Íslands. 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is