Dr. Egill Skúlason verðlaunahafi Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Dr. Egill Skúlason, eðlisefnafræðingur og dósent við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, var annar tveggja verðlaunahafa sem hlutu Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs árið  2015. Frá þessu var greint á 75 ára afmælisþingi Rannís á Hilton Reykjavík Nordica. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, afhenti honum og dr. Sesselju Ómarsdóttur, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, verðlaunin.
 
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru veitt vísindamanni eða -mönnum sem snemma á ferlinum þykja hafa skarað fram úr og skapa væntingar um framlag í vísindastarfi sem treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987. „Markmiðið með veitingu Hvatningarverðlaunanna er að hvetja vísindamenn til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindamanna,“ eins og segir á vef Rannís.
 
Nýjar aðferðir við framleiðslu vistvæns eldsneytis

Um Egil segir á vef Rannís: „Egill Skúlason er fæddur árið 1979 og lauk meistaraprófi í reikniefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og síðan doktorsprófi 2009 í verkfræðilegri eðlisfræði frá Danska tækniháskólanum. Í meistaranáminu lagði hann grunn að rannsóknum sínum, en þær snúast um að beita tölvureikningum til að skilja betur rafefnafræðileg ferli og hvatavirkni. Með rannsóknum sínum hefur Egill meðal annars verið að leita að efnahvötum sem geta gert það mögulegt að að framleiða áburð og vistvænt eldsneyti við herbergishita og –þrýsting til að leysa af hólmi orkufrekar aðferðir sem notaðar hafa verið hingað til. Egill hefur byggt upp öflugan og fjölþjóðlegan rannsóknahóp og verið ötull við að laða til sín nema og vekja áhuga þeirra á rannsóknum. Til viðbótar við öflugt rannsóknastarf og kennslu á sínu fagsviði, hefur Egill tekið að sér mikilvæg stjórnunarstörf við að setja upp nýjar námslínur við HÍ, bæði í efnaverkfræði og verkfræðilegri eðlisfræði, sem án efa eiga eftir að hafa mikla þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf í framtíðinni.“

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is